Styrkir til menningarmálaí Fjarðabyggð

Atvinnu- og menningarnefnd auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála fjárhagsárið 2012

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir í Fjarðabyggð geta sótt um styrk til menningarstarfs eða einstakra menningarverkefna. Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Fjarðabyggð með fastri búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Fjarðabyggð eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð. Ekki er styrkt til náms, reksturs, útgáfustarfsemi eða viðhalds húsnæðis.

Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk.

Hægt er að nálgast eyðublöð vegna umsókna hér ásamt úthlutunarreglum. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

This entry was posted in Fjarðabyggð and tagged , . Bookmark the permalink.

Comments are closed.