Vopnfirðingar taka þátt í Lífshlaupi ÍSÍ

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta-og Ólympíusambands Íslands, var ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 1. febrúar sl. Á síðastliðnum árum hefur átt sér stað mikil vakning meðal fólks um gildi hreyfingar en þó virðist alltaf þörf á að minna á þessa staðreynd öðru hverju – öllu heldur með jöfnu millibili. Lífshlaupið á nokkurra ára sögu með almennri þátttöku íbúa víðs vegar um landið, í ár er Vopnafjarðarskóli sannarlega virkur þátttakandi því 20 af 24 starfsmönnum stofnunarinnar eru meðal þátttakenda í Lífshlaupinu í ár.

Eins og áður greinir á Lífshlaupið sér nokkra forsögu en þáv. menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, skipaði í byrjun ársins 2005 starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþróttastefnu. Formaður starfshópsins var Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi heilbrigðisráðherra. Starfshópurinn setti fram hugmyndir um mótun stefnu eða tillögu að íþróttastefnu Íslands í skýrslunni, Íþróttavæðum Ísland, aukin þátttaka, breyttur lífsstíll. Meginmarkmið skýrslunnar var að finna leiðir fyrir alla hópa þjóðfélagsins, óháð aldri, búsetu, fjárhag eða öðrum þáttum að stunda íþróttir og hreyfingu með einum eða öðrum hætti sér til heilsubótar.

This entry was posted in Vopnafjörður and tagged , . Bookmark the permalink.

Comments are closed.